Monday, June 11, 2007

Póstkort 1

Jæja...þá er loksins komið að því...fyrsta póstkortið frá Danmörku!

Við erum að verða búin að koma okkur fyrir hérna, ennþá eftir að taka upp úr nokkrum kössum og svona en komið að því að gefa sér tíma til að skrifa aðeins hér hvernig hefur gengið og hvað við höfum verið að gera.

31. maí

Við flugum út seinni partinn 31. maí. Við höfðum haft svo miklar áhyggjur af því að Styrmir yrði rosalega hræddur í flugvélinni en honum fannst rosalega gaman.  Katla aftur á móti var frekar hrædd og vildi bara sitja í fanginu á mér en féllst loksins á að sitja í sætinu ef ég leiddi hana...alla flugferðina :)

Við lentum svo í Köben og Einar sótti bílaleigubílinn meðan við hin nutum þess að vera úti í góða veðrinu.  Þá var farið í það að villast í Köben!  Við fundum s.s. ekki leiðina út á motorvejinn og fórum meðal annars að hinu fræga Tivoli!!!  Þetta hafðist nú samt á endanum og eftir að við komumst út á motorvej þá var lítið mál að finna hótelið í Menstrupp sem við ætluðum að gista á fyrstu nóttina.  Þegar við komum svo þangað beið okkar lykillinn að herberginu í umslagi í móttökunni en enginn að vinna þannig við bara tókum lykilinn og fórum að finna herbergið.  Það sem beið okkar var tveggja manna 
herbergi og við vorum 5 og enginn að vinna í móttökunni!!! 
Ég, Sindri, Styrmir og Katla sváfum í rúminu og Einar á gólfinu, hann fékk ekki mikinn svefn!  

1. júní

Styrmir vaknaði mjög snemma og leið ekki vel, hann vildi fara heim, hann er ekki mikið fyrir breytingar, þannig Einar fór með hann í bíltúr meðan við hin reyndum að sofa aðeins meira.  Svo var bara skellt í sig morgunmat og haldið af stað að taka við nýja húsinu okkar :)

Þegar þangað var komið var farið að bera inn allan farangurinn en svo skelltum við okkur í búð sem heitir Bilka og er í Næstved þar sem við þurftum að fylla á ískápinn og kaupa ýmislegt sem okkur vantaði.  Stuttu eftir að við komum heim kom gámurinn og þá byrjaði ballið...þvílíkt magn af dóti sem við eigum!!!  Einar og Sindri sáu að mestu um að bera meðan ég sagði þeim hvert hlutirnir ættu að fara og passaði upp á að litlu börnin væru ekki fyrir og leika við þau úti og þá gerðust undur og stórmerki (fannst okkur sko) við sáum broddgölt rölta í innkeyrslunni hjá okkur!!!  Omg hvað þarf stundum lítið til að gleðja mann :)

2. júní

Eftir ágætis svefn...allaveg miklu betri en nóttina áður...vöknuðum við kl. 8 við að Geir var kominn til okkar með rúnstykki, hvítvín og salt en þetta er einhver sniðug hefð hér í Danmörku.  Mikið rosalega var gaman að hitta Geir, hann er svo æðislegur.  Við byrjuðum á að skella í okkur mat og svo var farið að bera meira úr gámnum.  Svo var grillað um kvöldið og farið snemma í rúmið.


3. júní

Þennan dag fengum við skemmtilega heimsókn...Guðrún Ósk og mamma hennar komu :)

4. júní

Jæja þá var komið að því...Una kom með alla fjölskylduna til mín, hún og börnin ætla að búa hjá mér í sumar eða þangað til þau kaupa sér hús hérna.  Mikið rosalega var gaman að sjá hana...og þau öll :)

5-7. júní

Þessir dagar fóru í göngutúra, sólböð, leiki, búðaráp og svo auðvitað í að koma okkur betur fyrir.

8. júní

Kveðjustund!  Þetta var erfiður dagur svona andlega séð.  Einar og Davíð áttu flug til Íslands um kvöldið :(
Við Einar fórum kl.9 að hitta skólastjórann í Grönbroskole og okkur fannst bæði hann 
og skólinn æðislegur!!!  Svo kl. 12 fórum við með Sindra að hitta skólastýruna í Fuglebjergskole.  Okkur fannst sá skóli líka æðislegur og skólastýran.  Seinna um daginn fórum við Einar fórum með börnin í Safari garð og það var æðislegt...keyrðum í gegnum tígrisdýrabúr og vá hvað þessi dýr eru stóóóóór!  Og hvað haldið þið...auðvitað varð myndavélin mín 
batteríslaus í tígrisdýrabúrinu! Svo sáum við fyndna bavíana, gíraffa, uxa,
strúta og margt fleira en við náðum ekki að fara nema í smá part af garðinum út af tímaskorti, en við ætlum að fara aftur seinna...maður þarf að gefa sér heilan dag í þetta.  Jæja, svo kom að því að kveðja kallana og við Una fórum bara snemma að sofa.



9. júní

Birta systir Unu kom til okkar í hádeginu með dóttur sína hana Emmu og börnin voru öll að leika út í garði og hafa gaman. Emma talar bara dönsku og börnin okkar bara íslensku en þetta gekk bara 
rosalega vel þrátt fyrir það.  Svo gistu þær hjá okkur um nóttina.

10. júní

Una og hennar börn fóru heim með Birtu og Emmu í hádeginu og ætla að vera þar fram á næsta föstudag.  Þetta var kærkomin hvíld fyrir mig því það er erfitt að hafa svona mikið áreiti alltaf og í raun og veru var nánast enginn friður búinn að vera á heimilinu frá því við fluttum til DK.  En ég var samt strax farin að hlakka til að fá þau aftur til okkar ;)

11. júní

Við ákváðum að skoða okkur aðeins um og prufa að fara í strætó og lá leið okkar í Fuglebjerg.  Þegar þangað var komið fórum við í Super Brugsen til að fá okkur að drekka en þar keyptum við líka bók á dönsku fyrir mig og barnabækur fyrir litlu börnin svo þau geti aðeins byrjað að læra dönsku.  En þegar við komum út úr búðinni voru Styrmir og Katla svo ergileg þannig við tókum bara fyrsta strætó heim aftur :/  Þegar kom að háttatíma hjá þeim lásum við tvær af nýju bókunum og Styrmir náði þessu bara alveg strax...hann verður örugglega fljótur að læra að tala dönsku.


Héðan í frá skrifa ég oftar og minna í einu...þetta áttu jú bara að vera póstkort en ekki ritgerðir...

Steina danska!











No comments: